top of page

Betra uppi?

Það heur verið mjög vinsælt að tylla sér á bar, veitingastað eða bara einhvern stað sem hægt er að setjast niður á toppi bygginga (betur þekkt á ensku sem roof top staðir). Kannski tóku þið eftir því í sumar þegar það var sólskin að margir sóttust í að njóta sólargeislana úti og á svo kölluðum roof top stöðum. Af hverju er það? Jú rooftop staðir eru með marga kosti eins og að hafa gott útsýni. Að geta fengið annað sjónarhorn heldur en vanalega, horft niður á borgina og þannig fengið tilbreytingu á aðstæðum. Það felst einnig ákveðin ró að geta horft niður á göturnar, fólkið og bílana og séð heilt yfir hvað er í gangi. Að ná heildarsýn á hlutunum getur aukið hugmyndaflæði og sköpun en líka gefið ákveðinn ramma svo ekki er farið of langt út fyrir hlutina. 

Íslenskt sumar er stutt fyrirbæri. Sjaldgæft en þegar það gerist að það er hlýtt og sólin skín er vilja allir nýta sér það. Það sést ekki einn auður blettur á Austurvelli, allir úti á pallinum eða á roof top stöðum. Iðulega hafa roof top staðir nefnilega gott og opið útisvæði og er kannski ein stór ástæða af hverju fólk sækist í roof top á sumrin. Kannski líður fólki ómeðvitað eins og það sé að komast nær sólinni því lengra uppi sem það er. Og jafnvel þótt að það sé ekki veður til þess að sitja úti þá eru roof top staðir opnir og bjartir útaf fjölda og stærð glugga. 


Tískubylgja roof top staða hefur þróast hægt og rólega með tímanum. Stórborgir byrjuðu að nýta sér þak byggingana til þess að geta boðið upp á góða og fallega aðstöðu til afþreyinga. Við tengjum kannski roof top staði við ákveðin lúxus en fyrst þá voru veitingastaðir, barir og þak hótela ekki mikið fyrir almenning heldur ,,fínna fólk.” En svo þegar almenningur var farinn að sækjast meira í þessa upplifun þá fóru þessir roof top staðir að markaðssetja sig sem lúxus staðir með einstakri upplifun. Samfélagsmiðlar nú til dags sýna frá allskonar flottum roof top stöðum og tískan um að setjast á þannig staði varð ennþá meiri. En núna er allur gangur á þessu. Sestu á Petersen eða Loft í miðbæ Reykjavíkur. Tveir roof top staðir sem hafa mjög mismunandi andrúmsloft en hafa það sameiginlegt að geta boðið fólki á að koma til þeirra og njóta lengst uppi. 


Þannig ef þú ert að plana á að setjast niður að læra, vinna eða bara spjalla með vinum þá er vert að prófa fara á roof top stað. Þó að vindurinn sé orðin meiri, rigningin sést nánast alla daga og kuldinn er farinn að læðast upp að okkur þá þarf það ekki að stoppa þig til að setjast uppi og úti. Bara næla sér í teppi og hafa það kósý.   


Comments


bottom of page